Tilkynning um vaxtabreytingu sjóðfélagalána.

17.4.2024

  • Untitled-design-3-

Untitled-design-3-

Stjórn Lífsverks hefur tekið ákvörðun um breytingar á vöxtum sjóðfélagalána.

Frá og með 17. apríl hækka fastir vextir verðtryggðra grunnlána út lánstímann úr 3,70% í 3,90% og fastir vextir verðtryggðra viðbótarlána úr 4,70% í 4,90%.

Eftirfarandi vaxtabreytingar taka gildi frá og með 1. júní 2024

Vextir grunnlána:

- Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána fara úr 3,50% í 3,70%.

Vextir viðbótarlána:

- Breytilegir vextir verðtryggðra viðbótarlána fara úr 4,50% í 4,70%.

Greiða þarf lágmarksiðgjald á ári til sjóðsins til að njóta þessara kjara. Sjá nánar í lánareglum Lífsverks á vefsíðu sjóðsins hér .

Þá hefur sú breyting orðið á lánareglum að eingöngu er lánað vegna fasteignakaupa eða endurfjármögnunar eldri lána hjá Lífsverki. Viðbótarlán til fyrstu kaupenda verða óbreytt.

Við bendum lántökum á að hægt er að nálgast upplýsingar um lán sitt inn á sjóðfélagagáttinni. Þar er hægt að nálgast áætlaða niðurgreiðslutöflu og sjá væntanlegar greiðslur eftir vaxtabreytingu og út lánstímann.

Fréttir