Linda Hrönn Hermannsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Lífsverks.

28.12.2023

  • Linda- Heimasíða

Linda hefur víðtæka reynslu af markaðs- og kynningarmálum og hefur unnið sem birtingastjóri á auglýsingastofu undanfarin ár. Áður starfaði hún hjá Reykjavíkurborg á velferðarsviði í markaðsmálum og stafrænum umbreytingum.

Linda er með B.A gráðu í miðlun- og almannatengslum og M.S gráðu í markaðsfræði. Þá er hún einnig með IPMA vottun í verkefnastjórn.

„Ég hlakka til að verða hluti af því öfluga teymi sem starfar hjá Lífsverki og taka þátt í að efla sjóðinn í þeim áhugaverðu verkefnum sem framundan eru,“ segir Linda.

Starfsfólk Lífsverks býður Lindu velkomna til starfa.

Fréttir