Aðalfundur Festi hf. 2023
Aðalfundur Festi hf. árið 2023 var haldinn miðvikudaginn 22. mars klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.
| Dagskrárliður | Lagt fram af | Afgreiðsla* |
|---|---|---|
| Skýrsla stjórnar um rekstur og starfsemi þess á liðnu starfsári | Kynning | |
| Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2022 | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins | Stjórn | Samþykkt |
| Tillögur tilnefningarnefndar að breyttum starfsreglum nefndarinnar | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um viðbótarþóknun kjörinna nefndarmanna í tilnefningarnefnd vegna starfsársins 2022-2023 | Stjórn | Hjáseta |
| Ályktunartillaga Gildis-lífeyrissjóðs um endurskoðun starfsreglna tilnefningarnefndar | Gildi | Samþykkt |
| Kosning stjórnar | Sjálfkjörið | |
| Kosning tilnefningarnefndar | Stjórn | Samþykkt |
| Kosning endurskoðenda | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, tilnefningarnefndar og undirnefnda stjórnar | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um starfskjarastefnu félagsins | Stjórn | Hjáseta |
| Tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum | Stjórn | Samþykkt |
*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.