Vextir óverðtryggra lána lækka um áramót

24.11.2017

Stjórn Lífsverks hefur ákveðið að frá og með næstu áramótum lækki vextir óverðtryggðra íbúðalána til sjóðfélaga úr 5,95% í 5,70%. Vextir þeirra sem þegar eru með óverðtryggð lán hjá sjóðnum lækka samsvarandi. Vextir eru ákvarðaðir til sex mánaða í senn og miðast breytingar við 1. janúar og 1.júlí. Vextir verðtryggðra lána Lífsverks eru 3,50% og verða óbreyttir áfram.

Lán til sjóðfélaga hafa verið traustur eignaflokkur hjá sjóðnum sl. áratugi. Hagstæð samsetning sjóðfélaga gerir það m.a. að verkum að vanskil eru fátíð og því hefur sjóðurinn verið þekktur fyrir góð kjör á lánum til sjóðfélaga. Það er stefna stjórnar sjóðsins að halda áfram á sömu braut. Greiða þarf lágmarksiðgjald á ári til að njóta bestu kjara. Þeir sem eingöngu greiða til séreignardeilda Lífsverks eiga einnig lánsrétt.

Lánareglur sjóðsins má nálgast hér:

Fréttir