Samruni Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins samþykktur

13.11.2025

Sjóðfélagar Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins samþykktu tillögu um samruna sjóðanna í rafrænum kosningum sem lauk í dag. Alls greiddu 929 sjóðfélagar Lífsverks atkvæði eða um 26,3% af virkum sjóðfélögum. 750 samþykktu tillöguna eða 80,7% en 179 voru á móti. Mikill meirihluti sjóðfélaga Almenna samþykkti tillöguna.

Sjóðirnir verða sameinaðir miðað við næstu áramót að því gefnu að samþykki Samkeppniseftirlitsins liggi fyrir og staðfesting Fjármála- og efnahagsráðuneytisins á samþykktum sameinaðs sjóðs. Áunnin elli-, örorku- og makalífeyrisréttindi sjóðfélaga Lífsverks flytjast yfir í sameinaðan sjóð en frá og með næstu áramótum munu iðgjöld mynda grunn að nýjum réttindum.

Stjórnir beggja sjóða voru einhuga um að mæla með sameiningu sjóðanna. Mikil ánægja er með niðurstöðu kosninganna og að þessir tveir öflugu lífeyrissjóðir geti nú sameinað krafta sína. „Við teljum að þetta verði heillaskref fyrir sjóðfélaga til framtíðar og að mikil tækifæri felist í sameinuðum sjóði. Á sama tíma höfum við hjá Lífsverki fundið fyrir miklum stuðningi og tryggð sjóðfélaga við sinn gamla sjóð, sem ber að þakka. Jafnframt viljum við koma á framfæri þakklæti til þeirra sem atkvæði greiddu í kosningunni og þeirra sem unnið hafa að sameiningunni frá því sl. vor, ekki síst stjórnar- og starfsmönnum Almenna lífeyrissjóðsins,“ segir Jón L. Árnason, framkvæmdastjóri Lífsverks.

Fréttir