Opið fyrir framlengingu ráðstöfunar séreignarsparnaðar

30.6.2023

  • Lífsverk flytur á Laugaveg 182, 2.hæð. Skrifstofan verður lokuð fimmtudaginn 11.janúar og föstudaginn 12.janúar.

Þetta er gert með því að skrá sig inn á www.leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.

Almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna hefur verið framlengd til og með 31. desember 2024.

Framlengingin byggir á lögum 51/2023, sem samþykkt voru á Alþingi 9. júní sl.

Umsækjendur þurfa að óska eftir áframhaldandi ráðstöfun

Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi áfram.

Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá og með 1. júlí 2023 og engar frekari greiðslur berast inn á lán.

Frestur til að samþykkja áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september 2023. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði þegar þær berast.

Athugið að þetta úrræði á ekki við um fyrstu kaupendur sem hafa heimild til að greiða inn á lán í allt að 10 ár.

Nánari upplýsingar má finna á vef skattsins

Fréttir