Nýr framkvæmdastjóri

26.6.2015

Jón L. Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Lífsverks lífeyrissjóðs.

Undanfarinn áratug hefur Jón starfað á eignastýringarsviði hjá Arion banka og fyrirrennurum hans, fyrst sem viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu og forstöðumaður frá árinu 2009. Frá ársbyrjun 2013 hefur Jón gegnt störfum framkvæmdastjóra Eftirlaunasjóðs FÍA og Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands, auk þess að vera rekstrarstjóri séreignarsjóðsins Lífeyrisauka.

Jón er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Jafnframt hefur Jón staðist hæfismat hjá Fjármálaeftirlitinu sem framkvæmdastjóri lífeyrissjóða.

Jón mun hefja störf hjá sjóðnum 9 júlí n.k.

Fréttir