Lífsverk lífeyrissjóður hefur gerst aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja

Hlut­verk Festu er að auka þekk­ingu á sam­fé­lags­ábyrgð og ábyrgum starfsháttum, stuðla að auk­inni sjálf­bærni og hvet­ja til sam­starfs og að­gerða á þessu sviði.

5.10.2020

  • Festa_stoltur-adili_Red

Þá er hlutverk Festu að tengja saman ólíka aðila sem vilja vera leiðandi á sviði samfélagsábyrgðar og sjálfbærni.

Með aðild að Festu ætlar Lífsverk að taka virkari þátt í umræðu og sækja fræðslu um samfélagsábyrgð, sjálfbæra þróun og ábyrgar fjárfestingar.

Auk þess að vera nú aðili að Festu, þá eru Lífsverk einnig meðal stofnaðila Iceland SIF sem eru samtök sem beita sér í að efla þekkingu fjárfesta á aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga.

Einnig er Lífsverk aðili að UNPRI (United Nations Principles for Responsible Investments) sem eru reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og skuldbindur sig til að skila árlega skýrslu um framvindu umbótaverkefna á sviði ábyrgra fjárfestinga.

Festa_stoltur-adili_Red

Fréttir