Lífsverk lækkar vexti á óverðtryggðum lánum

17.5.2017

Frá og með 1. júlí lækka vextir óverðtryggðra íbúðalána Lífsverks til sjóðfélaga úr 6,50% í 5,95%. Vextir þeirra sem þegar eru með óverðtryggð lán hjá sjóðnum lækka samsvarandi. Vextir eru ákvarðaðir til sex mánaða í senn. Vextir verðtryggðra lána Lífsverks eru 3,50% og verða óbreyttir áfram.

Lán til sjóðfélaga hafa verið traustur eignaflokkur hjá sjóðnum sl. áratugi. Hagstæð samsetning sjóðfélaga gerir það m.a. að verkum að vanskil eru fátíð og því hefur sjóðurinn verið þekktur fyrir góð kjör á lánum til sjóðfélaga. Það er stefna stjórnar sjóðsins að halda áfram á sömu braut. Greiða þarf lágmarksiðgjald á ári til að njóta bestu kjara. Þeir sem eingöngu greiða til séreignardeilda Lífsverks eiga einnig lánsrétt.

Lánareglur sjóðsins má nálgast hér:  

Fréttir