Lækkun vaxta á sjóðfélagalánum

Stjórn Lífsverks ákvað á fundi í morgun að lækka vexti á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum til sjóðfélaga og tekur breytingin gildi 1. maí nk.

8.4.2020

Breytilegir vextir verðtryggðra lána verða 2,15% og breytilegir vextir óverðtryggðra lána verða 4,45%. Vextir verðtryggðra lána með föstum vöxtum verða óbreyttir, 3,40%.

Breytingin tekur til grunnlána sjóðsins en lánað er fyrir allt að 70% af virði eignar samkvæmt kaupsamningi eða fasteignamati. Álag á viðbótarlán er óbreytt. Fyrstu kaupendum býðst að taka allt að 85% lán hjá sjóðnum.

Lánareglur sjóðsins má nálgast hér. 

Fréttir