Kynning frambjóðenda til aðalstjórnar

Framboðsfresti til aðalstjórnar Lífsverks lauk 25. mars sl. og bárust fjögur framboð karla innan frestsins en aðeins eitt framboð kvenna. Öllum framboðum fylgdi tilskilinn fjöldi meðmælenda og hefur kjörnefnd úrskurðað þau öll gild.

30.3.2021

Eva Hlín Dereksdóttir, núverandi varaformaður stjórnar sjóðsins, sóttist eftir endurkjöri og er hún sjálfkjörin í stjórn til næstu þriggja ára.

Kjósa þarf um stjórnarsæti karls. Frambjóðendur eru eftirtaldir:

Agnar Kofoed-Hansen

Gnýr Guðmundsson

Jóhann Þór Jóhannsson

Thomas Möller

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 12.-16. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði á venjubundnum afgreiðslutíma á skrifstofu sjóðsins, á meðan kosning stendur yfir.

Allir sjóðfélagar njóta kosningaréttar, þ.e. þeir sem greitt hafa til samtryggingardeildar sjóðsins og eiga hjá honum réttindi og á það einnig við um elli- og örorkulífeyrisþega. Eru sjóðfélagar hvattir til að nýta kosningarétt sinn.

Kynning frambjóðenda er hér meðfylgjandi:

Agnar Kofoed Hansen

Gnýr Guðmundsson

Jóhann Þór Jóhannsson

Thomas Möller

Fréttir