Dregur úr ávöxtun á fyrri hluta ársins

13.10.2016

Hrein eign Lífsverks 30. júní 2016 nam 68,8 milljörðum króna en var til samanburðar 66,4 milljarðar um síðustu áramót. Eignir sjóðsins hafa því aukist um 2,4 milljarða fyrstu sex mánuði ársins.

Ávöxtun séreignaleiða á tímabilinu var í samræmi við fjárfestingarstefnu og þar endurspeglaði áhættumesta leiðin, Lífsverk 1, sem er blönduð leið skuldabréfa og hlutabréfa, erfitt fjárfestingarumhverfi. Var nafnávöxtun Lífsverks 1 neikvæð um 0,4%. Aðrar leiðir skiluðu jákvæðri nafnávöxtun. Ávöxtun Lífsverks 2, sem leggur áherslu á innlend skuldabréf, var  0,8% og Lífsverk 3, með áherslu á innlán, skilaði 2,1% nafnávöxtun.
Ávöxtunartölur miðast allar við fyrstu 6 mánuði ársins 2016.

Stærsti hluti eigna samtryggingardeildar sjóðsins er í skuldabréfum, sem nema 35,3 milljörðum og eignarhlutum í félögum og sjóðum, sem nema 23,2 milljörðum. Veðlán til sjóðfélaga nema 7,6 milljörðum. Fyrstu sex mánuði ársins voru veitt ný lán til 77 sjóðfélaga, samtals að fjárhæð 1,5 milljarðar og hefur ásókn í lán aldrei verið jafnmikil hjá sjóðnum. 

Greidd iðgjöld til sjóðsins námu 2 milljörðum króna og lífeyrisgreiðslur námu 391 milljón. Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum er 21,8%. Fjárfestingartekjur námu alls 890 milljónum. 

Sjóðfélagar geta nálgast sundurliðun á verðbréfaeign sjóðsins, sem nemur meira en 1% af hreinni eign, með því að skrá sig inn á sjóðfélagavefinn með innskráningarhnappnum hér efst á síðunni.

Fréttir