Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör.

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:00.

27.2.2024

Dagskrá:

1. Skýrsla stjórnar

2. Ársreikningur 2023 kynntur

3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt

4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu

5. Greint frá úrslitum rafræns stjórnarkjörs

6. Kosning varastjórnarmanna

7. Kosning endurskoðanda og tveggja fulltrúa í endurskoðunarnefnd

8. Tillögur um breytingar á samþykktum

9. Ákvörðun um laun stjórnarmanna og endurskoðunarnefndar

10. Önnur mál

Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar ásamt skýrslu tryggingafræðings munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins viku fyrir aðalfund, sjóðfélögum til sýnis.

Rafrænt stjórnarkjör 

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 8.-12. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði á venjubundnum afgreiðslutíma á skrifstofu sjóðsins, á meðan kosning stendur yfir.

Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 20. mars

Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem tveir varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 20. mars. Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins. Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Nálgast má reglur kjörnefndar og frekari upplýsingar um stjórnarkjör hér.

Reykjavík, 27. febrúar 2024

Stjórn Lífsverks lífeyrissjóðs og kjörnefnd

Fréttir