Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn á Engjateig 9, Reykjavík, þriðjudaginn 26.apríl kl.17:00.

8.3.2022

Nánari dagskrá aðalfundar verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar ásamt skýrslu tryggingafræðings munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins viku fyrir aðalfund, sjóðfélögum til sýnis.

Rafrænt stjórnarkjör

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 12.-22. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði á venjubundnum afgreiðslutíma á skrifstofu sjóðsins, á meðan kosning stendur yfir.
Kosið verður rafrænt um einn aðalmann í stjórn (óháð kyni), auk þess sem einn varamaður verður kosinn á aðalfundi.

Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 29. mars

Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins. Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Hér má nálgast reglur kjörnefndar og frekari upplýsingar um stjórnarkjör.

Fréttir