Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 21. apríl kl. 17:00. Auglýst er eftir framboðum til stjórnar, framboðsfrestur er til 25.mars.

27.2.2020

Nánari dagskrá aðalfundar verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 8.-17. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem tveir varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 25. mars.

Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins.

Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Hér er að finna reglur um framkvæmd stjórnarkjörs:
Reglur um framkvæmd stjórnarkjörs

Fréttir