Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 9. apríl kl. 17:00. Auglýst er eftir framboðum til stjórnar, framboðsfrestur er til 12.mars.

19.2.2019

Nánari dagskrá aðalfundar verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. 

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 1.-5. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.
Kosið verður rafrænt um einn aðalmann í stjórn (karl eða konu) auk þess sem einn varamaður verður kosinn á aðalfundi, framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 12. mars.

Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins.

Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Hér er að finna reglur um framkvæmd stjórnarkjörs:
Reglur um framkvæmd stjórnarkjörs

Fréttir