Ávöxtunarleiðir

Lífsverk býður upp á þrjár mismunandi ávöxtunarleiðir í viðbótarlífeyrissparnaði. 

Við val á ávöxtunarleið þarf m.a. að huga að aldri, eignastöðu og  og viðhorfi til áhættu. Þú getur valið um þrjár mismunandi áhættusamar ávöxtunarleiðir fyrir viðbótarsparnað þinn. Rétthafar geta hvenær sem er fært sig á milli leiða án kostnaðar, ef aðstæður breytast eða ef vilji stendur til að auka eða draga úr áhættu.

Lífsverk 1

Lífsverk 1 er talin áhættumesta ávöxtunarleiðin. Leiðin er blanda af skuldabréfum og innlendum og erlendum hlutabréfum. Ávöxtun safnsins er háð sveiflum á markaðsvöxtum skuldabréfa og gengi innlendra og erlendra hlutabréfa. Þessi leið hentar fólki við upphaf starfsævinnar, þeim sem vilja taka meiri áhættu eða hafa gott þol gagnvart sveiflum í ávöxtun og vilja ávaxta fjármuni sína til lengri tíma.

Lífsverk 1: Fjárfestingarstefna 2026 og eignasamsetning þann 30.09.2025 

Eignaflokkur Fjárfestingarstefna 2026Staða 30.09.2025Vikmörk
Lausafé0,0%5,7%0-50%
Skuldabréf 40,0% 42,1% 30-60%
 Veðskuldabréf7,0% 7,2% 0-20% 
Ríkisskuldabréf 10,0% 10,3% 0-60%
Fyrirtækjaskuldabréf 5,0% 4,9% 0-30%
Skuldabréf lánastofnana 13,0% 13,1% 0-40%
Skuldabréf sveitarfélaga 4,0% 3,2% 0-15%
Erlend skuldabréf 1,0% 3,4% 0-30%
Hlutabréf 60,0% 52,2% 20-60%
Innlend hlutabréf 20,0% 17,6% 10-50%
Erlend hlutabréf 40,0% 34,6% 10-50%

Lífsverk 2

Lífsverk 2 er talin bera meðaláhættu sem ávöxtunarleið. Leiðin er með áherslu á innlend skuldabréf en fjárfestir jafnframt í innlendum og erlendum hlutabréfum. Ávöxtun safnsins er háð sveiflum á markaðskröfu skuldabréfa en einnig gengi innlendra og erlendra hlutabréfa. Leiðin hentar fólki á miðri starfsævi, þeim sem hafa miðlungs þol gagnvart sveiflum í ávöxtun og vilja ávaxta fjármuni sína til meðallangs tíma.

Lífsverk 2: Fjárfestingarstefna 2026 og eignasamsetning þann 30.09.2025 

Eignaflokkur  Fjárfestingarstefna 2026 Staða 30.09.2025    Vikmörk      
 Lausafé                 0,0%                    5,6%  0-50%    
 Skuldabréf 60,0% 60,8% 40-80%
 Veðskuldabréf9,0%9,7%  0-15%
 Ríkisskuldabréf 16,0% 16,4% 0-60%
Fyrirtækjaskuldabréf                 9,0% 8,1% 0-30%
Skuldabréf lánastofnana 18,0% 17,1% 0-40%
Skuldabréf sveitarfélaga 6,0% 4,1% 0-15%
 Erlend skuldabréf 2,0% 5,3% 0-30%
 Hlutabréf 40,0% 33,6% 20-60%
 Innlend hlutabréf 13,0% 11,9% 5-35% 
 Erlend hlutabréf 27,0%21,7% 5-35%

Lífsverk 3

Lífsverk 3 er áhættuminnsta ávöxtunarleiðin. Þessi leið er blanda af innlánum og skuldabréfum. Ávöxtun safnsins er að nokkru leyti háð innlánsvöxtum banka en einnig sveiflum á markaðskröfu skuldabréfa. Þessi leið hentar þeim sem nálgast eftirlaunaaldur og vilja draga úr áhættu.

Lífsverk 3:  Fjárfestingarstefna 2026 og eignasamsetning þann 30.09.2025

Eignaflokkur Fjárfestingarstefna 2026Staða 30.09.2025
Vikmörk 
Lausafé10,0%16,7%0-80%
Skuldabréf 90,0% 83,3% 20-100%
 Veðskuldabréf2,0% 2,0% 0-10% 
Ríkisskuldabréf 47,0% 46,5% 20-100%
Fyrirtækjaskuldabréf14,0% 11,8% 0-35%
Skuldabréf lánastofnana20,0%  20,5% 0-60%
Skuldabréf sveitarfélaga6,0% 0,8% 0-35%
Erlend skuldabréf1,0% 1,7% 0-20%

Nafnávöxtun 12 mánuðir 


  2024 2023 20222021 202020192018 2017 2016

Lífsverk 1

 12,2% 5,8% -9,9%
 22,9% 16,2% 15,9% 1,5% 6,2%0,5%

Lífsverk 2 

 10,3% 5,9% -6,6% 14,9% 11,3% 12,8% 4,3% 7,4% 3,6%

Lífsverk 3

 8,1% 5,5% 0,8% 3,1% 5,9% 5,4% 3,9% 4,9% 5,1%

Raunávöxtun 12 mánuðir



 2024 2023 2022 20212020 2019 20182017  2016

Lífsverk 1

 7,0% -2,0% -17,6% 17,3% 12,3% 12,9%-1,7% 4,4% -1,6%

Lífsverk 2

 5,3% -1,9% -14,6% 9,6% 7,6% 9,9% 1,1% 5,6%  1,5%

Lífsverk 3

 3,2% -2,3% -7,8% -1,7% 2,3% 2,7% 0,7% 3,1%  3,0%
5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar         2024
     Lífsverk 1 2,6%*
     Lífsverk 2 0,8%*
     Lífsverk 3 -1,4%*


* Taflan sýnir 5 ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar hverrar séreignarleiðar en sveiflur í ávöxtun á milli ára hafa verið nokkrar.
Hafa ber í huga að ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð