Fréttir: 2025

Untitled-design_1764251197690

Tilkynning um vaxtabreytingu sjóðfélagalána. - 27.11.2025

Stjórn Lífsverks hefur tekið ákvörðun um breytingar á vöxtum sjóðfélagalána.

Samruni Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins samþykktur - 13.11.2025

Sjóðfélagar Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins samþykktu tillögu um samruna sjóðanna í rafrænum kosningum sem lauk í dag. Alls greiddu 929 sjóðfélagar Lífsverks atkvæði eða um 26,3% af virkum sjóðfélögum. 750 samþykktu tillöguna eða 80,7% en 179 voru á móti. Mikill meirihluti sjóðfélaga Almenna samþykkti tillöguna.

Rafrænum kosningum lýkur í dag kl. 16:00 og streymi frá framhaldi aukaaðalfundar hefst kl. 17:00. - 13.11.2025

Framhald aukaaðalfundar Lífsverks í dag, fimmtudaginn 13.nóvember, á Engjateigi 9, kl.17:00

Have-your-say-1-

Kosning er hafin um sameiningu Lífsverks og Almenna lífeyrissjóðsins. - 11.11.2025

Rafræn kosning um tillögur er hafin og lýkur kl. 16:00 fimmtudaginn 13. nóvember. Sjóðfélagar eru hvattir til að kjósa.

Skjamynd-2025-11-10-160010

Beint streymi á aukaaðalfundinn í dag - 11.11.2025

Aukaaðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs, vegna tillögu um sameiningu við Almenna lífeyrissjóðinn, verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, í dag þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17:00. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Untitled-design-36-

Kynningarfundur 4.nóvember kl.11:00 á Engjateigi 9. - 28.10.2025

Sjóðfélögum Lífsverks er boðið til kynningarfundar um tillögu stjórna Lífsverks og Almenna um sameiningu sjóðanna. Fundurinn verður haldinn að Engjateigi 9, þriðjudaginn 4. nóvember kl. 11 – 12.

Untitled-design-35-

Aukaaðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs - 24.10.2025

Aukaaðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs, vegna tillögu um sameiningu við Almenna lífeyrissjóðinn, verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17:00. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Vfvfb

Aðeins lán með föstum vöxtum í boði - 23.10.2025

Vegna óvissu um lán með breytilegum vöxtum í kjölfar dóms Hæstaréttar nr. 55/2024 mun Lífsverk eingöngu bjóða sjóðfélögum verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann að svo stöddu. 

Untitled-design-30-

Niðurstöður úr kosningum um breytingar á samþykktum - 20.10.2025

Gr. 16.5 og 16.6 í samþykktum voru felldar, 18. gr. samþykkta samþykkt með 77% atkvæða 

Skjamynd-2025-10-20-130108

Nýr upplýsingavefur um tillögur um sameiningu Lífsverks og Almenna - 20.10.2025

Sterkari saman – upplýsingavefur Lífsverks og Almenna.

Beint streymi á upplýsingafundinn í dag - 20.10.2025

Aukaaðalfundur í dag, kl.17:00, Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica

Untitled-design-1-

Aukaaðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs - 3.10.2025

Haldinn á Vox Club á Hilton Reykjavík Nordica – mánudaginn 20. október kl. 17:00


Sjóðfélagayfirlit eru komin á sjóðfélagavefinn. - 2.10.2025

Við viljum vekja athygli á því að sjóðfélagayfirlit eru komin inn á sjóðfélagavefinn.

146637.2e16d0ba.fill-1006x580-c100

Al­menni og Lífs­verk undir­rita sam­runa­samning - 26.9.2025

„Mark­miðið er einnig að ná fram hag­ræðingu í rekstri sem getur stuðlað að lægri kostnaði og hærri ávöxtun til sjóðfélaga.“

Untitled-design-42-

Tilkynning um vaxtabreytingu sjóðfélagalána. - 28.5.2025

Stjórn Lífsverks hefur tekið ákvörðun um breytingar á vöxtum sjóðfélagalána.

Lífsverk fagnar 70 ára afmæli. - 29.4.2025

Lífsverk fagnar 70 ára afmæli

Þann 29. apríl 1955 fékkst staðfesting fjármálaráðuneytisins á reglugerð Lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags Íslands, sem síðar varð Lífsverk lífeyrissjóður og fagnar sjóðurinn því 70 ára afmæli í dag. Eva Hlín Dereksdóttir, stjórnarformaður, minntist afmælisins á aðalfundi sjóðsins

Niðurstaða aðalfundar 2025 - 9.4.2025

Á aðalfundi Lífsverks í gær tilkynnti Elísabet Árnadóttir, í kjörnefnd sjóðsins, um úrslit í rafrænum kosningum til stjórnar. Kjósa átti um eitt sæti í aðalstjórn og voru fjórir í framboði. Alls greiddu 430 atkvæði, eða 12% af virkum sjóðfélögum. Úrslit kosninga urðu þau að Reynir Leví Guðmundsson hlaut 47% atkvæða, Margrét Elín Sigurðardóttir 29%, Kristján Arinbjarnar 18% og Pálmar Sveinn Ólafsson 6%. Reynir Leví tekur því sæti í aðalstjórn Lífsverks til næstu 3ja ára. 

Untitled-design-34-

Almenni og Lífsverk hefja sameiningarviðræður. - 26.3.2025

Stjórnir Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Markmiðið er að kanna hvort sameining bæti hag sjóðfélaga og styrki starfsemi sjóðanna til framtíðar.

Untitled-design-33-

Aðalfundur og rafrænt sjórnarkjör. - 24.3.2025

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 8.apríl kl.17:00

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Tilkynning um vaxtabreytingu sjóðfélagalána. - 20.3.2025

Stjórn Lífsverks hefur tekið ákvörðun um breytingar á vöxtum sjóðfélagalána.

Fjórir í framboði um eitt stjórnarsæti. - 19.3.2025

Rafrænt stjórnarkjör til aðalstjórnar fer fram á sjóðfélagavef dagana 31. mars – 4. apríl og eru fjórir í framboði til aðalstjórnar.

Tillögur að uppgjöri vegna ÍL-sjóðs lagðar fram. - 10.3.2025

Ráðgjafar 18 lífeyrissjóða og viðræðunefnd fjárlaga- og efnahagsráðherra hafa komist að niðurstöðu um að leggja fyrir fund skuldabréfaeigenda tillögu að uppgjöri HFF-bréfa sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs. 

Sjóðfélagayfirlit eru komin á sjóðfélagavefinn. - 6.3.2025

Við viljum vekja athygli á því að sjóðfélagayfirlit eru komin inn á sjóðfélagavefinn.

Auglýst eftir framboðum. - 5.3.2025

Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum til stjórnar Lífsverks. Framboðsfrestur er til 17.mars.

Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör. - 25.2.2025

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 8.apríl kl.17:00

Tilkynning um vaxtabreytingu sjóðfélagalána. - 20.2.2025

Stjórn Lífsverks hefur tekið ákvörðun um breytingar á vöxtum sjóðfélagalána.