Vaxtabreyting 1. október

31.8.2022

Í ljósi vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands sl. miðvikudag hefur stjórn Lífsverks ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum lánum um 0,50% og verða vextirnir 6,48% frá og með 1. október. Vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum hækka samsvarandi.

Vextir á verðtryggðum lánum haldast áfram óbreyttir en þeir eru 1,5% með breytilegum vöxtum og 3,2% fastir vextir út lánstímann.

Lánað er fyrir allt að 70% af virði eignar samkvæmt kaupsamningi eða nýju fasteignamati. Lánsfjárhæð grunnlána getur numið allt að 70 milljónum króna og viðbótarlána 30 milljónum króna. Fyrstu kaupendum býðst að taka allt að 85% lán hjá sjóðnum.

Lánareglur sjóðsins má nálgast hér .

Fréttir