Sigrún Eyjólfsdóttir ráðin markaðs- og kynningarstjóri

24.1.2023

Sigrún Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri hjá Lífsverki lífeyrissjóði.

Sigrún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði markaðs- og kynningarmála ásamt starfi persónuverndarfulltrúa.

Sigrún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði lengst af í fjármálageiranum, hjá Straumi-Burðarási, Skilanefnd Kaupþings, MP banka og Kviku banka, meðal annars á sviði markaðs- og mannauðsmála. Þá hefur Sigrún starfað undanfarin ár í ferðaiðnaðinum við markaðs- og kynningarmál.

Sigrún er með MS gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og lauk grunnnámi í spænsku og sagnfræði frá sama skóla.

Hún hefur þegar tekið til starfa. 

Fréttir