Lífsverk rýmkar inngönguskilyrði í sjóðinn

29.8.2016

Stjórnendur sjóðsins telja að með þessu móti verði unnt að fjölga sjóðfélögum og efla sjóðinn enn frekar, án þess að sérstaða hans glatist. Lífsverk er eini lífeyrissjóður landsins sem eingöngu er ætlaður háskólamenntuðu fólki.

Örorkutíðni er lág meðal sjóðfélaga og ávinnsla lífeyrisréttinda fyrir hverja krónu greidds iðgjalds almennt hærri en hjá öðrum aldurstengdum lífeyrissjóðum á almennum markaði. Þá gefst sjóðfélögum kostur á að leggja hluta af skylduiðgjaldi í séreignarsjóð sem veitir meiri sveigjanleika við útgreiðslu og erfist að fullu við fráfall sjóðfélaga.

Lífsverk hefur verið þekktur fyrir góð kjör á íbúðalánum, m.a. vegna hagstæðrar samsetningar sjóðfélaga, sem gerir það að verkum að vanskil eru fátíð. Vextir á verðtryggðum lánum eru nú 3,5% og frá því í febrúar hefur Lífsverk  einnig boðið óverðtryggð lán með föstum vöxtum til 6 mánaða í senn, nú 6,5%. Til þess ennfremur að koma til móts við yngri sjóðfélaga er þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð veittur helmingsafsláttur af lántökugjöldum. Ekkert uppgreiðslugjald er á lánum Lífsverks.

Lífsverk lífeyrissjóður starfrækir samtryggingardeild og séreignardeild, þar sem hægt er að velja milli þriggja mismunandi áhættusamra ávöxtunarleiða. Öllum er heimilt að gera samning um viðbótarsparnað við sjóðinn og veitir það einnig lánsrétt.

Fréttir