Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2025 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Fly Play 2025

9. apríl 2025

Aðalfundur Fly Play hf. 2025 var haldinn miðvikudaginn 9. apríl klukkan 16:00 á Grand Hótel

DagskrárliðurLagt fram afAfgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi liðins starfsárs Kynning
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktarStjórnSamþykkt
Atkvæðagreiðsla um hvernig fara skuli með rekstrarniðurstöðu félagsins á árinuStjórnSamþykkt
Stjórnarkjör Sjálfkjörið
Kosning endurskoðanda StjórnSamþykkt
Kosning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd félagsinsStjórnSamþykkt
Ákvörðun um kjör stjórnarmanna, varamanna í stjórn og undirnefndum stjórnarStjórnSamþykkt
Tillaga stjórnar að starfskjarastefnuStjórnHjáseta

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér