Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2023 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Hluthafafundur VÍS júní 2023

14. júní 2023

Hluthafafundur Vátryggingafélags Íslands hf. var haldinn miðvikudaginn 14. júní kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík.

 

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins                                                                                          
 a. Tillaga um lækkun hlutafjár Stjórn Á móti
b. Tillaga um breytingar á samþykktum Stjórn Hjáseta

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.