Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2023 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Hluthafafundur Eikar fasteignafélags september 2023

15. september 2023

Hluthafafundur Eikar fasteignafélags hf. var haldinn föstudaginn 15. september kl. 16:00 í salnum Sjónarhóll, Nauhólsvegi 106, Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Greinargerð stjórnar vegna valfrjáls yfirtökutilboðs Regins hf.                                                               Kynning
Viðfangsefni í tengslum við samrunaviðræður við Reiti fasteignafélag hf. Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.