Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Símans 2022

10. mars 2022

Aðalfundur Símans hf. árið 2022 var haldinn á Hótel Nordica fimmtudaginn 10. mars. Fundurinn var einnig rafrænn.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Kosning stjórnar félagsins    Sjálfkjörið  
 Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins  Stjórn  Samþykkt  
 Kaupréttaráætlun fyrir starfsmenn  Stjórn  Samþykkt  
 Breytingartillaga Gildis varðandi kaupréttaráætlun
fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur o.fl.
 Gildi  Samþykkt  
 Kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur o.fl.  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.