Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Reita 2022

11. mars 2022

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. var haldinn föstudaginn 11. mars 2022 á Hótel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 11.00.

Dagskrárliður Lagt fram af  Afgreiðsla*  
 Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um starfskjarastefnu    Samþykkt  
 Kosning stjórnarmanna félagsins    Sjálfkjörið  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér