Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Regins 2022

10. mars 2022

Aðalfundur Regins hf. 2022 var haldinn fimmtudaginn 10. mars klukkan 16.00 í fundarsalnum Rímu í Hörpu.

Dagskrárliður  Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Tillaga um starfskjarastefnu  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning stjórnar (x þýðir að Lífsverk greiddi viðkomandi atkvæði)      
 Albert Þór Jónsson      
 Benedikt Olgeirsson    x  
 Bryndís Hrafnkelsdóttir    x  
 Guðrún Tinna Ólafsdóttir    x  
 Heiðrún Jónsdóttir    x  
 Tómas Kristjánsson    x  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.