Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Play 2022

6. apríl 2022

Aðalfundur Fly Play hf. 2022 var haldinn miðvikudaginn 6. apríl kl. 16:00 í Iðnó, menningarhúsi við Tjörnina, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.

 Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Kosning í stjórn félagsins    Sjálfkjörið  
 Tillaga um starfskjarastefnu félagsins  Stjórn  Hjáseta  
       

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér