Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Össurar 2022

8. mars 2022

Aðalfundur Össurar hf. 2022 var haldinn þriðjudaginn 8. mars. Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 5.

 Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Ákvörðun um starfskjarastefnu  Stjórn  Hjáseta  
 Kosning stjórnar   Sjálfkjörið  
 Tillaga um heimild til kaupa eigin bréfa  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um veitingu heimildar til að setja upp endurkaupaáætlun  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.