Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Íslandsbanka 2022

17. mars 2022

Aðalfundur Íslandsbanka hf. árið 2022 fór fram fimmtudaginn 17. mars á Grand Hótel Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Kosning stjórnar, varastjórnar og formanns stjórnar    Sjálfkjörið  
 Tillaga um starfskjarastefnu  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.