Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Iceland Seafood 2022

17. mars 2022

Aðalfundur Iceland Seafood International hf. 2022 var haldinn fimmtudaginn 17. mars kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Ákvörðun um starfskjarastefnu  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning stjórnar    Sjálfkjörið  
 Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér