Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Eimskip 2022

17. mars 2022

Aðalfundur Eimskiptafélags Íslands hf. 2022 var haldinn fimmtudaginn 17. mars kl. 16:30 með rafrænum hætti auk þess sem hægt var að mæta í höfuðstöðvar félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík.

Dagskrárliður  Lagt fram af  Afgreiðsla*  
 Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um starfskjarastefnu félagsins  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning stjórnar félagsins    Sjálfkjörið  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér