Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Arion banka 2022

16. mars 2022

Aðalfundur í Arion banka hf. árið 2022 var haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 16. mars kl. 16:00.

Dagskrárliður Lagt fram af  Afgreiðsla*  
Kosning stjórnar bankans, stjórnarformanns og
varaformanns stjórnar
   Sjálfkjörið  
Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu bankans  Stjórn  Samþykkt  
Tillaga um endurnýjun á heimild bankans til kaupa á
eigin hlutum og samsvarandi breyting á samþykktum
 Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.