Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


10.11.2023

Lífsverk óskar eftir að ráða traustan og drífandi einstakling í starf áhættustjóra

Áhættustjóri ber ábyrgð á áhættustýringu sjóðsins auk þess að koma að greiningarvinnu og eftirfylgni á sviði eignastýringar.

  • Lykillinn að góðri framtíð er að huga að henni strax

Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða traustan og drífandi einstakling í starf áhættustjóra. Áhættustjóri ber ábyrgð á áhættustýringu sjóðsins auk þess að koma að greiningarvinnu og eftirfylgni á sviði eignastýringar.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á starfssviði áhættustýringar
  • Greining og mæling á áhættu í rekstri sjóðsins
  • Skýrslugjöf um áhættu til stjórnar og eftirlitsaðila
  • Mótun og umsjón með áhættustefnu og áhættustýringarstefnu
  • Flokkun eigna, skýrslugjöf og skoðun fjárfestinga með tilliti til stefnu Lífsverks í ábyrgum fjárfestingum
  • Eftirlit með mörkum og fylgni við fjárfestingarstefnu
  • Umsjón með innra eftirliti hjá sjóðnum
  • Eftirfylgni með óskráðum eignum
  • Þátttaka í þróun og viðhaldi á skilvirku eftirlitskerfi fyrir áhættu í rekstri sjóðsins í samstarfi við stjórn og stjórnendur


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði fjármála, verk- eða tölfræði, eða sambærileg menntun. Meistarapróf er kostur
  • Haldgóð starfsreynsla í eignastýringu eða á fjármálamarkaði
  • Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og niðurstöður í tölum og texta
  • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og jákvætt viðmót
  • Góð færni í íslensku og ensku


Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða. Allir sem lokið hafa grunnnámi eða eru í námi á háskólastigi geta skráð sig í sjóðinn. Lífsverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem byggði á aldurstengdum réttindum, tók upp sjóðfélagalýðræði og rafrænt stjórnarkjör. Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur réttinda og val um leiðir fyrir skyldusparnað. Sjóðurinn hefur stækkað einna mest allra lífeyrissjóða frá árinu 2014.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.lifsverk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2023. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Intellecta


Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.


Forsíða

  • Skyldusparnaður
    • Samtryggingardeild
    • Eignasamsetning og ávöxtun
    • Fjárfestingarstefna
    • Áhættustefna
    • Útgreiðsla lífeyris og réttindi
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Viðbótarsparnaður
    • Almennt um viðbótarlífeyrissparnað
    • Ávöxtunarleiðir
    • Lykilupplýsingaskjöl
    • Útgreiðsla
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Sjóðfélagalán
    • Lán hjá Lífsverki
    • Umsóknarferli lána
    • Vextir og gjaldskrá
    • Greiðslujöfnunarsjóður
    • Reiknivél
    • Lánsumsókn
    • Lánareglur
    • Spurt og svarað
  • Ábyrgar fjárfestingar
    • Stefna
      • Skýrslur
  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Um sjóðinn

  • Stjórn
  • Starfsfólk
  • Ársskýrslur
  • Samþykktir
  • Reglur og stefnuskjöl
  • Ábyrgar fjárfestingar
  • Fréttasafn
  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Persónuverndarstefna
  • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur
  • Umsóknir

  • Skráning í Lífsverk
  • Um sjóðinn
  • Spurt og svarað
  • Fréttir
  • Umsóknir
  • Launagreiðendur
  • English

Leita á vefnum


Skráning í Lífsverk
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • 9:00-16:00 mán.-fim. / 9:00-15:00 föstudaga
Lífsverk lífeyrissjóður – lógó Kennitala: 430269-4299
  • Laugavegur 182
    105 Reykjavík
  • Opið
    9:00 - 16:00   mán. - fim.
    9:00 - 15:00   föstudaga
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • Facebook

  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Hafa samband
  • Persónuvernd
Stoltur aðili Festu
Þetta vefsvæði byggir á Eplica