Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


29.4.2025

Lífsverk fagnar 70 ára afmæli.

Lífsverk fagnar 70 ára afmæli

Þann 29. apríl 1955 fékkst staðfesting fjármálaráðuneytisins á reglugerð Lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags Íslands, sem síðar varð Lífsverk lífeyrissjóður og fagnar sjóðurinn því 70 ára afmæli í dag. Eva Hlín Dereksdóttir, stjórnarformaður, minntist afmælisins á aðalfundi sjóðsins

Þann 29. apríl 1955 fékkst staðfesting fjármálaráðuneytisins á reglugerð Lífeyrissjóðs Verkfræðingafélags Íslands, sem síðar varð Lífsverk lífeyrissjóður og fagnar sjóðurinn því 70 ára afmæli í dag. Eva Hlín Dereksdóttir, stjórnarformaður, minntist afmælisins á aðalfundi sjóðsins fyrr í mánuðinum og boðið var upp á áletraða afmælisköku í tilefni þessara tímamóta.

Í fundargerð frá 1. aðalfundi sjóðsins, sem haldinn var 8. nóvember 1955 kemur fram að Skúli Guðmundsson flutti skýrslu stórnar og lýsti hann tildrögum að stofnun sjóðsins. Auk Skúla voru Rögnvaldur Þorláksson og Hinrik Guðmundsson skipaðir í nefnd til að athuga með stofnun lífeyrissjóðs í framhaldi af stofnun stéttarfélags verkfræðinga 1954. Var mikill hugur í félagsmönnum á stofnun slíks sjóðs og haustið 1954 tókust samningar milli stéttarfélags verkfræðinga annars vegar og Vinnuveitendasambands Íslands og „Reykjavíkurbæjar“ hins vegar, um kaup og kjör verkfræðinga, þar sem gert var ráð fyrir að vinnuveitendur greiddu ákveðið tillag til lífeyrissjóðs verkfræðinga. Samþykkt var að stofna sjóðinn á fundi í Verkfræðingafélagi Íslands 28. september 1954 og voru þar jafnframt ákveðin nokkur meginatriði reglna sjóðsins. Reglugerð fyrir sjóðinn var síðan lögð fram til samþykktar á aðalfundi 29. mars 1955 og var hún staðfest mánuði síðar af fjármálaráðuneytinu.

Í fyrstu stjórn sjóðsins sátu Rögnvaldur Þorláksson, formaður, Skúli Guðmundsson, varaformaður og Hinrik Guðmundsson, gjaldkeri og voru þeir kjörnir á aðalfundi. Auk þeirra voru Páll Flygenring, meðstjórnandi og Magnús Reynir Jónsson, ritari, skipaðir af Verkfræðingafélagi Íslands.

Hér má sjá afrit af fundargerð 1. aðalfundar félagsins:

Aðalfundur VFI 8.nóv 1955


Forsíða

  • Skyldusparnaður
    • Samtryggingardeild
    • Eignasamsetning og ávöxtun
    • Fjárfestingarstefna
    • Áhættustefna
    • Útgreiðsla lífeyris og réttindi
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Viðbótarsparnaður
    • Almennt um viðbótarlífeyrissparnað
    • Ávöxtunarleiðir
    • Lykilupplýsingaskjöl
    • Útgreiðsla
    • Reiknivél
    • Spurt og svarað
  • Sjóðfélagalán
    • Lán hjá Lífsverki
    • Umsóknarferli lána
    • Vextir og gjaldskrá
    • Greiðslujöfnunarsjóður
    • Reiknivél
    • Lánsumsókn
    • Lánareglur
    • Spurt og svarað
  • Ábyrgar fjárfestingar
    • Stefna
      • Skýrslur
  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Um sjóðinn

  • Stjórn
  • Starfsfólk
  • Ársskýrslur
  • Samþykktir
  • Reglur og stefnuskjöl
  • Ábyrgar fjárfestingar
  • Fréttasafn
  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Persónuverndarstefna
  • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur
  • Umsóknir

  • Skráning í Lífsverk
  • Um sjóðinn
  • Spurt og svarað
  • Fréttir
  • Umsóknir
  • Launagreiðendur
  • English

Leita á vefnum


Skráning í Lífsverk
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • 9:00-16:00 mán.-fim. / 9:00-15:00 föstudaga
Lífsverk lífeyrissjóður – lógó Kennitala: 430269-4299
  • Laugavegur 182
    105 Reykjavík
  • Opið
    9:00 - 16:00   mán. - fim.
    9:00 - 15:00   föstudaga
  • 575 1000
  • lifsverk@lifsverk.is
  • Facebook

  • Skráning í Lífsverk
  • Umsóknir
  • Hafa samband
  • Persónuvernd
Stoltur aðili Festu
Þetta vefsvæði byggir á Eplica