Lífsverk lífeyrissjóður

Valmynd


7.3.2023

Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:00.

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:00.

  • Almenni-Lífsverk hefur starfsemi

Nánari dagskrá aðalfundar verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.

Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar ásamt skýrslu tryggingafræðings munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins viku fyrir aðalfund, sjóðfélögum til sýnis.

Rafrænt stjórnarkjör

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 14.-21. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði á venjubundnum afgreiðslutíma á skrifstofu sjóðsins, á meðan kosning stendur yfir.

Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 27. mars

Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem tveir varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 27. mars. Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins. Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Nálgast má reglur kjörnefndar og frekari upplýsingar um stjórnarkjör  hér

 


Forsíða

  • Launagreiðendur
    • Skilagreinar
    • Greiðsluupplýsingar
  • Um sjóðinn
    • Stjórn
    • Starfsfólk
    • Ársskýrslur
    • Samþykktir
    • Reglur og stefnuskjöl
    • Ábyrgar fjárfestingar
    • Fréttasafn
    • Skráning í Lífsverk
    • Umsóknir
    • Persónuverndarstefna
    • Spurt og svarað

Innskráning

  • Sjóðfélagar
  • Launagreiðendur

  • Um sjóðinn
  • Launagreiðendur

Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica