Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Sýnar hf. 2022

18. mars 2022

Aðalfundur Sýnar hf. árið 2022 fór fram föstudaginn 18. mars að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Fundurinn var einnig rafrænn.

 Dagskrárliður  Lagt fram af  Afgreiðsla*  
 Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um starfskjarastefnu  Stjórn  Samþykkt  
 Stjórnarkjör (X þýðir að Lífsverk greiddi viðkomandi atkvæði)      
 Hjörleifur Pálsson    x  
 Jóhann Hjartarson    x  
 Páll Gíslason    x  
 Petrea Ingileif Guðmundsdóttir    x  
 Seeslía Birgisdóttir    x  
 Sólveig R Gunnarsdóttir      

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.