Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur VÍS 2022

17. mars 2022

Aðalfundur VSÍ árið 2022 fór fram fimmtudaginn 17. mars í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3 í Reykjavík.

Dagskrárliður  Lagt fram af  Afgreiðsla*  
 Tillaga um starfskjarastefnu og kaupaukakerfi  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning til stjórnar félagsins    Sjálfkjörið  
 Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.