Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Origo 2022

3. mars 2022

Aðalfundur Origo hf. 2022 var haldinn fimmtudaginn 3. mars klukkan 14.00 og var fundurinn rafrænn auk þess sem hægt var að mæta í höfuðstöðvar félagsins að Borgartúni 37, Reykjavík.

 Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu félagsins  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning stjórnar félagsins    Sjálfkjörið  
 Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum    Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér