Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Kviku banka 2022

31. mars 2022

Aðalfundur Kviku banka hf. var haldinn 31. mars 2022 á Grand Hótel Reykjavík, Háteigi, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

 Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf  Stjórn  Samþykkt  
 Tillaga um starfskjarastefnu félagsins  Stjórn  Hjáseta  
 Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins    Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.