Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2022 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Brim hf. árið 2022

24. mars 2022

Aðalfundur Brims hf. árið 2022 var haldinn fimmtudaginn 24. mars klukkan 17:00 með rafrænum hætti auk sem þess hægt var að mæta í höfuðstöðvar félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík.

 

 Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*  
 Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu  Stjórn  Samþykkt  
 Kosning stjórnar félagsins    Sjálfkjörið  
 Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum  Stjórn  Samþykkt  

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér