Eva Hlín og Unnar kjörin í stjórn Lífsverks - 17.4.2018

Á aðalfundi Lífsverks í gær tilkynnti Elísabet Árnadóttir, í kjörnefnd sjóðsins, um niðurstöður í kosningum til stjórnar. Kosið var um tvö sæti, karls og konu og voru sjö í framboði um stjórnarsætin. Atkvæði greiddu 524 eða um 19% virkra sjóðfélaga og hefur kosningaþáttaka aldrei verið betri. Niðurstöður urðu þær að flest atkvæði fengu Eva Hlín Dereksdóttir, sem fékk 273 atkvæði (52%) og Unnar Hermannsson, sem fékk 155 atkvæði (30%) og eru þau réttkjörin í stjórn Lífsverks til næstu þriggja ára. 

Lesa meira

Kynning frambjóðenda til aðalstjórnar - 26.3.2018

Framboðsfresti til aðalstjórnar Lífsverks lauk 19. mars sl. og bárust sjö framboð innan frestsins. Öllum framboðum fylgdi tilskilinn fjöldi meðmælenda og hefur kjörnefnd úrskurðað þau öll gild. Kosið er um tvo stjórnarmenn til næstu þriggja ára, eina konu og einn karl. 
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Eva Hlín Dereksdóttir
Freyr Ólafsson
Gnýr Guðmundsson
Helga Viðarsdóttir
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir
Sverrir Bollason
Unnar Hermannsson 

Lesa meira

Til sjóðfélaga í Lífsverki lífeyrissjóði - 12.3.2018

Athygli sjóðfélaga er vakin á því að framboðsfrestur til aðalstjórnar Lífsverks er til 19. mars nk.  
Kosið verður um tvo stjórnarmenn, karl og konu, í rafrænum kosningum sem fram fara dagana 9. – 13. apríl.
Úrslit verða kynnt á aðalfundi sjóðsins, sem haldinn verður þriðjudaginn 17. apríl í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Á fundinum verða jafnframt kjörnir þrír varastjórnarmenn.
Frambjóðendum til stjórnar ber að skila framboðum sínum til sjóðsins ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga fyrir lok framboðsfrests.
Nánari upplýsingar er að finna hér á vefsvæði sjóðsins.  

Lesa meira

Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör - 6.3.2018

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00.

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 9.-13. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem þrír varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 19. mars.

Lesa meira

Allt að 85% lánshlutfall vegna fyrstu kaupa - 1.3.2018

Stjórn Lífsverks hefur samþykkt nýjar lánareglur fyrir sjóðinn sem taka gildi 1. mars. Helsta breytingin er sú að nú gefst sjóðfélögum, sem eru að kaupa sína fyrstu eign, kostur á láni upp að 85% veðhlutfalli af söluvirði samkvæmt kaupsamningi. 

Lesa meira

Laust starf markaðs- og kynningarstjóra - 29.1.2018

Lífsverk leitar að markaðs- og kynningarstjóra í nýtt og spennandi starf hjá sjóðnum. Umsóknarfrestur er til
6. febrúar. Sjá nánar í auglýsingu hér í viðhengi.

Lesa meira

Breytingar á stjórn og aðalfundur 2018 - 3.1.2018

Um áramótin urðu breytingar á stjórn Lífsverks.

Margrét Arnardóttir, sem setið hefur í varastjórn, tekur sæti Brynju Baldursdóttur, sem dregur sig í hlé vegna annarra stjórnarstarfa.
Þá hverfur Guðrún Rögnvaldardóttir úr varastjórn vegna flutninga erlendis.



Lesa meira
Síða 2 af 2

Fréttir: 2018

Breytingar á stjórn og aðalfundur 2018

Um áramótin urðu breytingar á stjórn Lífsverks.

Margrét Arnardóttir, sem setið hefur í varastjórn, tekur sæti Brynju Baldursdóttur, sem dregur sig í hlé vegna annarra stjórnarstarfa.
Þá hverfur Guðrún Rögnvaldardóttir úr varastjórn vegna flutninga erlendis.



Lesa meira

Laust starf markaðs- og kynningarstjóra

Lífsverk leitar að markaðs- og kynningarstjóra í nýtt og spennandi starf hjá sjóðnum. Umsóknarfrestur er til
6. febrúar. Sjá nánar í auglýsingu hér í viðhengi.

Lesa meira

Allt að 85% lánshlutfall vegna fyrstu kaupa

Stjórn Lífsverks hefur samþykkt nýjar lánareglur fyrir sjóðinn sem taka gildi 1. mars. Helsta breytingin er sú að nú gefst sjóðfélögum, sem eru að kaupa sína fyrstu eign, kostur á láni upp að 85% veðhlutfalli af söluvirði samkvæmt kaupsamningi. 

Lesa meira

Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör

Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00.

Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 9.-13. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem þrír varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 19. mars.

Lesa meira

Til sjóðfélaga í Lífsverki lífeyrissjóði

Athygli sjóðfélaga er vakin á því að framboðsfrestur til aðalstjórnar Lífsverks er til 19. mars nk.  
Kosið verður um tvo stjórnarmenn, karl og konu, í rafrænum kosningum sem fram fara dagana 9. – 13. apríl.
Úrslit verða kynnt á aðalfundi sjóðsins, sem haldinn verður þriðjudaginn 17. apríl í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Á fundinum verða jafnframt kjörnir þrír varastjórnarmenn.
Frambjóðendum til stjórnar ber að skila framboðum sínum til sjóðsins ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga fyrir lok framboðsfrests.
Nánari upplýsingar er að finna hér á vefsvæði sjóðsins.  

Lesa meira

Kynning frambjóðenda til aðalstjórnar

Framboðsfresti til aðalstjórnar Lífsverks lauk 19. mars sl. og bárust sjö framboð innan frestsins. Öllum framboðum fylgdi tilskilinn fjöldi meðmælenda og hefur kjörnefnd úrskurðað þau öll gild. Kosið er um tvo stjórnarmenn til næstu þriggja ára, eina konu og einn karl. 
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Eva Hlín Dereksdóttir
Freyr Ólafsson
Gnýr Guðmundsson
Helga Viðarsdóttir
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir
Sverrir Bollason
Unnar Hermannsson 

Lesa meira

Eva Hlín og Unnar kjörin í stjórn Lífsverks

Á aðalfundi Lífsverks í gær tilkynnti Elísabet Árnadóttir, í kjörnefnd sjóðsins, um niðurstöður í kosningum til stjórnar. Kosið var um tvö sæti, karls og konu og voru sjö í framboði um stjórnarsætin. Atkvæði greiddu 524 eða um 19% virkra sjóðfélaga og hefur kosningaþáttaka aldrei verið betri. Niðurstöður urðu þær að flest atkvæði fengu Eva Hlín Dereksdóttir, sem fékk 273 atkvæði (52%) og Unnar Hermannsson, sem fékk 155 atkvæði (30%) og eru þau réttkjörin í stjórn Lífsverks til næstu þriggja ára. 

Lesa meira

Nýr starfsmaður

Svanhildur Sigurðardóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Lífsverks.

Svanhildur er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ ásamt diploma gráðu í markaðssamskiptum og almannatengslum frá Opna háskólanum í Reykjavík. Hún var áður markaðsrágjafi hjá Hvíta húsinu auglýsingastofu og þar á undan samfélags- og samskiptastjóri hjá Ölgerðinni.

Lesa meira

Iðgjald hækkar í 15,5% frá 1.júlí

Mótframlag launagreiðenda á almennum markaði hækkar 1.júlí úr 10% í 11,5% og verða þá heildariðgjöld launþega og launagreiðenda 15,5%.

Lesa meira

17% fjölgun nýrra sjóðfélaga fyrri hluta árs

Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða, því fjölgar nýskráningum mest við brautskráningar háskólanna eða þegar nýútskrifaðir hefja störf á vinnumarkaðnum.  Nýjum sjóðfélögum fjölgaði um 17% á fyrstu 6 mánuðum þessa árs.  Það er greinilegt að Lífsverk er góður valkostur þegar velja á lífeyrissjóð til framtíðar.

Lesa meira

Hlutfall kvenna eykst

Það er virkilega ánægjulegt að hlutur kvenna sé að aukast í sjóðnum og þá sérstaklega sem hlutfall af nýjum sjóðfélögum. Á fyrri hluta árs voru 38% þeirra sem skráðu sig í sjóðinn konur og er það met miðað við árin á undan og jafnvel frá upphafi. Konur eru gjarnan kröfuharðir neytendur og íhuga alla kosti vel áður en þær taka ákvörðun og því er enn ánægjulegra að þær velji Lífsverk sem sinn lífeyrissjóð.

Lesa meira

Ávöxtun á fyrri hluta ársins í takti við væntingar

Þrátt fyrir róleg viðskipti á innlendum hlutabréfamarkaði á fyrri hluta ársins 2018 var ávöxtun innlendra hlutabréfa ágæt en skuldabréfaflokkar gáfu hins vegar lakari ávöxtun. Nafnávöxtun samtryggingardeildar Lífsverks á tímabilinu var 2,7% og hrein raunávöxtun, að teknu tilliti til kostnaðar, var 1,2%.

Lesa meira

Sjóðfélagar Lífsverks fá forgang að íbúðum í Mörk

Lífsverk og Íbúðir eldri borgara í Mörk ehf., hafa undirritað samkomulag um langtíma fjármögnun á íbúðum eldri borgara við Suðurlandsbraut 68 – 70. Í samkomulaginu felst að sjóðfélagar Lífsverks njóta ákveðins forgangs við úthlutun á íbúðunum. Lífsverk er þannig fyrsti lífeyrissjóðurinn sem tryggir sjóðsfélögum sínum forgang að íbúðum fyrir eldri borgara. Íbúðirnar við Suðurlandsbraut eru 74 talsins og samkvæmt samkomulaginu munu sjóðsfélagar Lífsverks fá forgang að 20 íbúðum.

Lesa meira

Hækkun óverðtryggðra vaxta

Stjórn Lífsverks hefur ákveðið að frá og með næstu áramótum hækki vextir óverðtryggðra íbúðalána til sjóðfélaga úr 5,70% í 6,30%.  

Lesa meira

Ávöxtun í fortíð og framtíð

Í Silfrinu á Rúv sunnudaginn 16. desember var viðtal við Hallgrím Óskarsson, verkfræðing, sem tók saman skýrslu um lífeyriskerfið sem út kom í maí sl. Í þættinum var ávöxtun lífeyrissjóðanna árin 2000 – 2017 borin saman. Lífsverk kom ekki vel út í þeim samanburði en rétt er að koma á framfæri nokkrum athugasemdum:

Lesa meira