Mín réttindi
Smelltu á feitletruðu línuna hér fyrir neðan til þess að skoða lífeyrissjóðsréttindin þín. Upp kemur gluggi þar sem þú þarft að slá inn notandaheiti og lykilorð. Ef þú hefur ekki notandaheiti og lykilorð, þá þarft þú að sækja um aðgang til þess að geta skoðað réttindin þín. Það er einfalt að sækja um aðgang og útskýrt neðar á þessari síðu.
Smelltu hér til að skoða - Mín Réttindi
Sækja um aðgang
Ef þú ert sjóðfélagi getur þú fengið aðgang að gagnagrunni lífeyrissjóðsins og þannig fylgst með réttindum þínum, skilum launagreiðanda á iðgjöldum, lífeyrisgreiðslum o.þ.h.
Aðgangurinn gerir þér kleift að skoða upplýsingarnar og réttindi sem þú hefur safnað þér. Mikil áhersla hefur verið lögð á öryggisþátt þessa kerfis og ógerlegt er fyrir sjóðfélaga að skoða önnur gögn en hans eigin.
Með aðgangsvefnum er sjóðurinn að bæta og efla þjónustu sína. Í fyrstu er boðið upp á aðgang að upplýsingum um iðgjöld og lífeyrisgreiðslur, svo og reiknivélar lífeyrisréttinda og sjóðfélagalána, en upplýsingar um stöðu og greiðslur af sjóðfélagalánum verða aðgengilegar síðar..
Til að fá aðgang að þínum gögnum smellir þú á feitletruðu línuna hér fyrir neðan. Sjóðurinn fer yfir umsóknina og staðfestir hana gagnvart tölvukerfinu. Þú færð svo bréf sent (á skráð lögheimili þitt) með notandaheiti og lykilorði. Mikilvægt er að þú hafir lykilorðið út af fyrir þig, svo enginn annar geti skoðað þitt yfirlit á fölskum forsendum.
Smelltu hér til að sækja um aðgang
Gleymt lykilorð?
Ef þú hefur þegar aðgang en hefur gleymt lykilorðinu, skaltu smella á feitletruðu línuna hér fyrir neðan. Sjóðurinn mun senda þér lykilorð aftur (á skráð lögheimili þitt).
Smelltu hér til að endurheimta gleymt lykilorð?
