Sjóðfélagalán, veðleyfi, veðflutningar
Lífeyrissjóður verkfræðinga hefur samið við Arion banka (áður Kaupþing) á Laugavegi 120, um að bankinn sjái um alla umsýslu vegna útlána lífeyrissjóðsins til sjóðfélaga.
Sjóðfélagar eiga kost á að taka eitt frumlán og eitt viðbótarlán. Lánakjör eru mismunandi.
Fullt frumlán er kr. 9.745.000 og fullt viðbótarlán er kr. 10.000.000 í október 2009. Lánsfjárhæðin tekur breytingum í samræmi við byggingarvísitölu. Lántökugjald er 1%.
Nánari upplýsingar má sjá með því að smella hér.
Arion banki sér um afgreiðslu nýrra sjóðfélagalána og þjónustu vegna eldri lána lífeyrissjóðsins. Bankinn veitir sjóðfélögum faglega ráðgjöf og upplýsingar um lán og aðra þjónustu. Þá mun bankinn að auki bjóða þeim sjóðfélögum sem það þurfa upp á greiðsluerfiðleikaúrræði. Reglur Lífeyrissjóðs verkfræðinga um greiðsluerfiðleikaúrræði má sjá með því að smella hér. Úrræði Arion Banka um greiðsluerfiðleikaúrræði má finna hér.
Starfsmenn í aðalútbúi bankans að Laugavegi 120 í Reykjavík munu alfarið sjá um lífeyrissjóðslánin og þjónustu vegna þeirra. Nánari upplýsingar veita eftirfarandi ráðgjafar Arion banka í aðalútibúi:
- Guðjón Gústafsson, sími 444-6015
- Helga Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, sími 444-6014
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lifsverk(at)arionbanki.is eða hringja í aðalsímanúmer bankans 444-7000 þar sem starfsmenn geta aðstoðað eða tekið skilaboð. Nánari upplýsingar eru að finna hér á heimasíðu Arion Banka.
