Þátttaka í kaupum 14 lífeyrissjóða í HS Orku hf.
10. ágúst 201114 lífeyrissjóðir gerðu samning við dótturfélag Alterra Power (áður Magma Energy) í lok maí um kaup á hlut í HS Orku hf. Lífeyrissjóður verkfræðinga tók þátt í þeim kaupum sem nemur um 0,45% af eignum sjóðsins. Lífeyrissjóðirnir stofnuðu samlagshlutafélagið Jarðvarma slhf. til að halda utan um eignarhlutinn fyrir hönd sjóðanna.
Ráðning fjármálastjóra
07. júní 2011Rut Hreinsdóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri sjóðsins og hefur hún störf þann 8. júní n.k.


