Samningur um séreignarsparnað
Samkvæmt landslögum er skylda að gera skriflegan samning um séreignarsparnað. Í honum þarf meðal annars að koma fram sú fjárhæð sem greiða á fyrir hvern mánuð.
Hafi sjóðfélagi gert samning við sjóðinn en vilji síðan breyta þeirri fjárhæð sem greiða á mánaðarlega þarf hann að gera nýjan samning. Sjóðfélagi sem t.d. gerði í upphafi samning um að greiða í séreign 2% af launum þarf að gera nýjan samning vilji hann fullnýta skattahagræði séreignarsparnaðarins og greiða 4% af launum.
Unnt er að sækja samningseyðublað vegna séreignarsparnaðar með því að smella hér.
Útfyllt eyðublað skal senda í pósti:
Lífeyrissjóður verkfræðinga
Engjateigi 9
105 Reykjavík
Lífeyrissjóðurinn undirritar samninginn og sendir afrit til rétthafans og launagreiðandans.
Ákvæði samþykkta sjóðsins um séreignardeild
