Heimild til úttektar á séreingarsparnaði aukin í 5 milljónir
Alþingi samþykkti í desember 2010 lög sem fólu í sér tímabundna rýmkun ákvæða um útgreiðslu frjáls séreignarsparnaðar úr 2,5 m.kr. í 5 m.kr. Sækja þarf um úttekt samkvæmt heimild þessari fyrir 1. apríl 2011.
Nánari upplýsingar um tímabundna heimild til að taka út séreignarsparnað:
- Heimilt er að greiða út allt að 5.000.000 kr. á 12 mánuðum eða 416.667kr. á mánuði til sjóðfélaga. Útgreiðslutíminn styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð er að ræða.
- Inneignin sem hægt er að taka út miðast við stöðuna 1. janúar 2011, þó aldrei hærri fjárhæð en 5.000.000 kr.
- Sérstök heimld til úttektar séreignarsparnaðar nær ekki til greiðslna sem berast í sjóðinn eftir 1. janúar 2011.
- Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimild dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út nú.
- Greiðslum til þeirra sem hafa óskað eftir úttekt samkvæmt eldri heimild skal vera lokið áður en greiðslur hefjast samkvæmt nýrri lögum.
- Þeir sem þegar hafa sótt um útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt eldri heimild þurfa að sækja um áframhaldandi greiðslur með nýrri umsókn.
- Eingögnu er hægt að taka út hjá einum séreignarsjóði í einu.
- Greiddur er tekjuskattur af úttektarfjárhæðinni.
- Það er á ábyrgð sjóðfélaga að upplýsa sjóðinn í hvaða skattþrepi skattgreiðslur eiga að vera.
- Heimild til úttektar gildir til 1. apríl 2011.
- Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útborgun.
Sótt er um útgreiðslu séreignarsparnaðarins með því að fylla út umsóknareyðublað sem má nálgast hér
Ekki fellur allur séreignarsparnaður hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga undir ofangreint lagaákvæði. Þau ná einungis til þess sparnaðar sem byggir á samningi, þar sem sjóðfélagi greiðir iðgjald, oftast 4%, og launagreiðandi greiðir mótframlag, yfirleitt 2%.
Frá ársbyrjun 2007 hefur hluti af iðgjaldi til samtryggingardeildar runnið í séreignarsparnað. Þennan sparnað er óheimilt að greiða út. Því getur sú staða komið upp að þótt sjóðfélagi eigi séreignarsparnað sem er meira en einnar milljónar króna virði við gildistöku laganna þá sé einungis heimilt að greiða út hluta þeirrar fjárhæðar.
Tekið skal fram að allir sem náð hafa 60 ára aldri geta fengið allan séreignarsparnað greiddan út og gilda ofangreindar takmarkanir ekki um þá.
