mán 3.okt 2005
Aldurstengd réttindaöflun og hagnaðarútdeiling
Réttindaöflun í samtryggingardeild er aldurstengd og felur þannig í sér að því yngri sem sjóðfélagar eru þegar þeir greiða iðgjöld þeim mun meiri lífeyrisrétt ávinna þér sér. Forsendur réttindataflna gera ráð fyrir 3,5% raunávöxtun. Til að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar vegna réttinda sem myndast samkvæmt réttindatöflum þarf hann því að ná 3,5% raunávöxtun.
Verði ávöxtun sjóðsins hærri en 3,5% myndast hagnaður, en verði hún lægri en 3,5% myndast tap. Samkvæmt samþykktum sjóðsins er hagnaði útdeilt til sjóðfélaga til hækkunar á lífeyrisrétti þeirra, en þó ekki fyrr en búið er að jafna tap frá fyrri tíð. Á árunum 1992-1999 var ávöxtunin alltaf yfir 3,5% og því var hagnaði útdeilt árlega. Á árunum 2000-2002 var ávöxtunin hins vegar neikvæð og því hefur myndast uppsafnað tap hjá sjóðnum sem þó er innan þeirra marka sem leyfð eru skv. lögum. Hagnaði áranna 2003-2005 verður því að ráðstafa til að mæta uppsöfnuðu tapi og því verður ekki um hagnaðarútdeilingu að ræða fyrr en jöfnuður er kominn á.
Þegar gerður er samanburður á lífeyrissjóðum er nauðsynlegt að taka tillit til hagnaðarútdeilingarinnar því að raunveruleg staða kemur ekki í ljós fyrr en hvert ár hefur verið gert upp. Því má segja að réttindatöflurnar séu í raun einungis lágmarksgrunnur sem síðan er bætt ofan á ef afkoma sjóðsins er góð. Þó er ekki hyggilegt að gefa sér neitt um ávöxtun í framtíðinni.
