Lagaramminn um starfsemi lífeyrissjóðsins

Lífeyrissjóður verkfræðinga fellur undir lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Í þeim er að finna hámörk og lágmörk af ýmsu tagi sem sjóðum eru sett. Út fyrir þennan ramma getur sjóðurinn ekki farið.
Smelltu hér til að sjá lögin.



Sjóðfélagar hafa sett sjóðnum samþykktir. Með þeim getur sjóðurinn skapað sér sérstöðu og lagað sig að sérstökum þörfum eða einkennum sjóðfélagahópsins. Í sumum tilvikum kveða samþykktir sjóðsins á um að gera betur en krafist er að lágmarki í lögunum.
Smelltu hér til að sjá samþykktirnar.

Smelltu hér til að sjá samþykktirnar í pdf-skjali

Fjármálaráðuneytið veitir lífeyrissjóðnum starfsleyfi og staðfestir samþykkktir hans og breytingar á þeim. Ráðuneytið setur einnig reglugerðir um einstaka þætti í starfsemi lífeyrissjóða á grundvelli laganna um starfsemi lífeyrissjóða.
Smelltu hér til að sjá efni á heimasíðu ráðuneytisins um lífeyrismál


Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi lífeyrissjóðsins og setur einnig reglur um ýmis atriði í starfsemi lífeyrissjóða.
Smelltu hér til að sjá efni á heimasíðu fjármálaeftirlitsins um lífeyrismál.