mið 31.jan 2007

Almennt

Samkvæmt lögum er öllum launþegum skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði frá 16 ára til 70 ára aldurs. Vinnuveitendum er sömuleiðis skylt að halda eftir iðgjaldi af launum launþega og skila því til lífeyrissjóðsins ásamt mótframlagi sínu og mótframlagi ríkisins, eins og við á.

Skylt er að greiða til samtryggingardeildar, en launþegi getur að auki valið að greiða til séreignardeildar.

Með lögum sem tóku gildi 1. janúar 2007 voru lágmarksiðgjöld til lífeyrissjóðs hækkuð úr 10% af heildarlaunum í 12%. Í lögunum er veitt undanþága frá þessu ákvæði ef samið hefur verið um greiðslu 10% lágmarksiðgjalds í kjarasamningum og gildir undanþágan þar til nýr kjarasamningur öðlast gildi en frá þeim tíma hækkar iðgjaldið í 12%.

Skipting iðgjaldsins er þannig að launþegi greiðir 4% en launagreiðandi 8%.


Til samtryggingardeildar Lífeyrissjóðs verkfræðinga eru greidd 12% af heildarlaunum:

  • Hlutur launþega 4%
  • Hlutur launagreiðanda 8%


Til heildarlauna teljast dagvinna, yfirvinna, greitt orlof og hvers konar álag.

Ef launagreiðandi greiðir mótframlag umfram 6% rennur viðbótin í séreignarsparnað, nema sjóðfélagi kjósi að láta mótframlagið renna í samtryggingardeildina. Nánari upplýsingar um þessa tilhögun er að finna hér.

Til séreignardeildar er greidd sú fjárhæð sem launþeginn sjálfur kýs. Heimilt er að draga frá skattstofni allt að 4% af heildarlaunum sem greidd eru inn í séreignardeild. Í kjarasamningum hefur almennt verið samið um að vinnuveitendur greiði 2% mótframlag í séreignardeild, ef launþeginn greiðir 2-4% iðgjald.

Lögboðin skylda til greiðslu iðgjalda fellur niður þegar sjóðfélagi nær 70 ára aldri. Sjóðfélaga sem heldur áfram vinnu eftir þann tíma er þó heimilt að greiða áfram til sjóðsins að 72 ára aldri.